Polaris RZR 200 EFI er skemmtilegur og vel hannaður buggy bíll fyrir yngri ökumenn sem vilja stíga næsta skref í akstri utan vegar. Þetta er lipur og traustur buggy bíll sem sameinar sportlegt útlit, góða fjöðrun og notendavæna aksturseiginleika í pakka sem hentar vel til að læra á buggy bíl og njóta útiverunnar.
RZR 200 EFI er byggður með öryggi og stjórn í forgrunni. Youth Ride Control kerfið gerir foreldrum kleift að stilla hámarkshraða og afmarka aksturssvæði, sem gefur meiri yfirsýn og öryggistilfinningu. Öryggisrammi, net, belti og helmet-aware virkni styrkja síðan heildina enn frekar og gera bílinn að mjög spennandi kosti fyrir fjölskyldur sem vilja vandaðan fyrsta buggy bíl.
Þrátt fyrir að vera hugsaður fyrir yngri ökumenn er þetta enginn leikfangabíll. 180 cc EFI vélin, góð veghæð og fjöðrun hjálpa honum að ráða vel við ójafnt undirlag og torfærur, á meðan tveggja sæta uppsetningin gerir aksturinn enn skemmtilegri. Polaris RZR 200 EFI er því frábær kostur fyrir þá sem vilja öruggan, vandaðan og skemmtilegan buggy bíl með sterkum Polaris grunn.