Persónuvernd

Öryggi og persónuvernd á stormur.is

Þegar þú notar stormur.is eru ákveðnar upplýsingar vistaðar um heimsókn þína. Stormur selur þær ekki til þriðja aðila og virðir friðhelgi persónuupplýsinga allra viðskiptavina sinna. Með því að nota vefinn samþykkir þú skilmála okkar um persónuvernd og öryggi.



Hvað eru vefkökur (e. cookies)?

Vefkökur eru litlar textaskrár sem vefsvæði geymir í tölvunni þinni eða síma þegar þú heimsækir síðuna. Þær gera vefnum kleift að muna stillingar, aðlagasnotkun og bæta upplifun þína.

Sumar kökur eru nauðsynlegar til að vefurinn virki eðlilega (t.d. innskráning og innihald í körfu), aðrar hjálpa okkur að greina umferð og bæta þjónustu með verkfærum eins og Google Analytics.



Notkun Storms á vefkökum

Stormur notar vefkökur og sambærileg mælitól í þeim tilgangi að:

  • greina umferð á vefnum og bæta upplifun notenda

  • muna stillingar notenda og innihald í körfu

  • bæta þjónustu og greina vinsælt efni

  • tryggja öryggi í viðskiptum og greiðslum

Upplýsingar sem safnað er með þessum hætti eru aldrei notaðar til að rekja einstaka notendur persónugreinanlega. Þú getur stýrt samþykki fyrir vefkökum í gegnum stillingar sem birtast þegar þú heimsækir síðuna.



Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu, svo sem:

  • Nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang þegar pöntun er lögð inn.

  • Upplýsingar um greiðslur í gegnum öruggar greiðslugáttir.

  • Samskiptaupplýsingar þegar þú sendir inn fyrirspurn.

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að afgreiða pantanir, senda vörur, bæta þjónustu og svara fyrirspurnum. Stormur miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema þegar það er nauðsynlegt vegna greiðslu eða sendingar.



Að versla á vefnum okkar

Stormur leggur áherslu á að meðhöndla allar persónuupplýsingar á öruggan hátt.
Allar færslur í vefverslun fara fram í gegnum SSL-dulkóðun sem verndar gögn við flutning milli notenda og þjónustu okkar.
Greiðslur eru unnar í gegnum örugga greiðslugátt viðurkennds þjónustuaðila, og Stormur geymir ekki kortaupplýsingar viðskiptavina.



Vefmælingar og greining

Við notum mælitól á borð við Google Analytics til að fylgjast með notkun og umferð á vefnum. Gögnin eru notuð í samræmi við persónuverndarstefnu Google og hjálpa okkur að bæta upplifun notenda og aðgengi að efni.



Gildistími og endurskoðun

Persónuverndarstefna þessi er síðast uppfærð 21.10.25.
Stormur áskilur sér rétt til að breyta stefnunni ef lagabreytingar eða tæknilegar ástæður krefjast þess.

Scroll to Top