Skór
VÖRUFLOKKAR
KLIM skór
KLIM skór sameina öryggi, veðurvörn og þægindi fyrir akstur og daglega notkun. Klim alhliða GTX skóbúnaður fyrir aðstæður sem þarfnast vatnsheldni og einangraða vetrarskó fyrir kaldari aðstæður. Markmiðið er skýrt: vernd, gott grip og rétt snið – án þess að fórna þægindum.
Helstu eiginleikar
- GORE-TEX® vatnsheldni og öndun – skór hannaðir til að halda þér þurrum án þess að loka fyrir loftflæði.
- BOA® Fit System – nákvæm festing sem tekur sekúndur að festa, jöfn spennudreifing og stöðugir í akstri.
- MICHELIN® gúmmísóli – slitþolinn sóli fyrir öruggt grip.
- Vörn & styrkingar – ökkla-/táarstyrkingar, sköflungsplötur og höggvörn þar sem mest á reynir.
- Einangrun þar sem þarf – 3M™ Thinsulate™ í vetrarútgáfum fyrir stöðuga hlýju.
Línur & notkun
- Outlander / Adventure – adventure/touring skór með GORE-TEX og BOA; líta út og eru eins og gönguskór, en með mótorhjólavernd og eru því góðir sem mótorhjólaskór.
- Transition – léttir, mið-háir GTX skór yfir ökkla með BOA fyrir hraða stillingu og daglega notkun.
- Aurora / Adrenaline Pro S / Havoc / Range – veturskór með GTX og einangrun fyrir kulda, snjó og blautar aðstæður. Henta vel sem vélsleðaskór.
Stærð & snið
Mældu fót og berðu saman við stærðartöflur. Skórinn á að sitja þétt og jafnt án þrýstings; prófaðu í akstursstöðu og í göngu. Ef þú ert milli stærða í adventure-tegundunum er oft skynsamlegt að taka hálfu númeri stærra.













