Barnahjól
VÖRUFLOKKAR
Mondraker barnahjól
Barnahjól frá Mondraker sameina léttleika, trausta hönnun á stellinu og stjórnhæfni sem byggir upp sjálfstraust. Markmiðið er einfalt: að gera fyrstu og næstu skrefin á hjóli auðveld, örugg og skemmtileg – á stígum, malarvegum og í daglegum ferðum.
Af hverju Mondraker fyrir krakka?
- Létt & endingargott: stell og íhlutir valdir með þyngd og styrk í huga.
- Hönnun fyrir börn: lægri standhæð og styttra að ná til stýris fyrir betri stjórn.
- Stjórn & bremsur: barnvænar stillingar og öruggar bremsur sem byggja upp rétta tækni.
- Dekk & grip: breið dekk sem dempa högg og veita gott grip á misjöfnu undirlagi.
- Öll Mondraker barnahjól eru með vökva bremsum fyrir aukna bremsugetu svo auðveldara sé fyrir litlar hendur að stöðva hratt og örugglega.
Rétt stærð og stillingar
- Hjólastærð: veldu 16″ / 20″ / 24″ / 26″ eftir hæð og reynslu barns.
- Hæðarstilling: barnið þarf að ná auðveldlega niður með fæti; stilltu hnakk og stýri eftir þörfum.
- Vöxtur: ef barnið er milli stærða má velja stærra ef það hefur trausta stjórn og á eftir að vaxa meira.
Notkun & umhirða
Hvetjið til hjálmanotkunar og sýnileika í umferð. Haltu keðju hreinni, smyrðu reglulega, athugaðu loftþrýsting og herðingar á skrúfum – þannig helst hjólið flott, endist lengur og er tilbúið í næsta hjólreiðatúr.








