Mondraker Crafty Carbon RR er kraftmikið rafmagnsfjallahjól fyrir þá sem vilja hjól sem ræður vel við krefjandi ferðir, langt klifur og hraða niðurkeyrslu. Þetta er hjól fyrir þá sem vilja mikið afl, góða fjöðrun og hjól sem heldur ró sinni þegar undirlagið verður gróft og krefjandi.
Bosch Performance Line CX mótorinn vinnur vel með 800Wh rafhlöðunni og gefur þér bæði kraft í brekkunum og drægi fyrir lengri daga á hjólinu. Crafty Carbon RR er því mjög góður kostur fyrir þá sem vilja komast oftar upp, taka fleiri hringi og njóta þess að hafa meira eftir á tankinum þegar leiðin lengist.
160 mm gaffall að framan og 150 mm fjöðrun að aftan hjálpa hjólinu að taka við höggum og halda góðri stjórn. 29 tommu hjólin fara vel yfir grjót og ójafnt undirlag, á meðan öflug SRAM Maven bremsusett og GX Eagle Transmission AXS skiptingin setja punktinn yfir i-ið. Útkoman er rafhjól sem sameinar hraða, stöðugleika og mikla gleði fyrir metnaðarfulla fjallahjólara.

