KLIM fatnaður og búnaður frá Stormi
KLIM er eitt þekktasta vörumerki heims í tæknilegum fatnaði og öryggisbúnaði fyrir þá sem lifa og hrærast í útivist og vélarsporti. Fatnaðurinn er hannaður fyrir erfiðustu aðstæður — hvort sem þú ert á vélsleða, fjórhjóli, buggy-bíl, mótorhjóli eða í hjólreiðum. KLIM sameinar háþróaða tækni, þægindi og endingargæði.
Stormur er viðurkenndur umboðsaðili KLIM á Íslandi og býður upp á heildstætt úrval af fatnaði og aukahlutum fyrir íslenskar aðstæður. Hjá okkur finnur þú allt frá vélsleðafatnaði og hjálmum til regnfatnaðar, jakka, buxna, hanska og undirfatnað/miðjulag sem heldur þér hlýjum og þurrum á ferðinni.
Af hverju að velja KLIM?
- GORE-TEX® vatnsheldni – tryggir að þú haldist þurr í rigningu, snjó og vindi.
- Loftflæði og öndun – hámarks þægindi í langkeyrslu og mikilli hreyfingu.
- Árekstrarvörn og CE-vottun – öryggi í forgangi, hvort sem þú ert á torfæru eða hraðbraut.
- Endingargæði – sterkir saumar, styrkingar á slitflötum og prófað í raunverulegum aðstæðum.
- Hönnun fyrir bæði konur og karla – fjölbreytt úrval og snið sem henta öllu útivistar- og ævintýrafólki.
KLIM fatnaður og búnaður
Við bjóðum úrval sem spannar allt frá hefðbundinni útivist og yfir í vélsleða- og fjórhjólafatnaði og einnig mótorhjólabúnað og hjólreiðafatnað. Hver vara er hönnuð með áherslu á öryggi, þægindi og endingu. KLIM er ekki aðeins fyrir fagmenn — það er vörumerki þeirra sem vilja njóta ævintýra án málamiðlana.
Hvort sem þú ert að leita að nýjum KLIM hjálmi, heilgalla, hönskum, vesti, hlífðarfatnaði eða undirfatnað, þá finnur þú það allt hér hjá Stormi. Með réttum KLIM búnaði verður hver ferð bæði öruggari og ánægjulegri – frá fjallatoppum til hraunbreiða.





































