Your personal data will be used to process your order, support your experience throughout this website, and for other purposes described in our persónuverndarstefnu.
Skilmálar
Afhendingar- og sendingarmáti:
Viðskiptavinur sem kemur í verslun og kaupir vöru fær vöruna afhenta þar. Vara sem keypt er í vefverslun Storms getur kaupandi ýmist valið að sækja í verslun Storms, Kletthálsi 15, 110 Reykjavík, eða valið að fá vöruna senda á valinn afhendingarstað með þjónustu Póstsins. Opnunartími verslunar Storms er milli kl. 09 – 17 alla virka daga.
Sóttar pantanir:
Stormur tekur sér 2-3 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun. Viðskiptavinur, sem pantað hefur í gegnum vefverslun Storms en velur að sækja pöntun í verslun, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, þegar hann sækir pöntunina.
Sendar pantanir:
Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað tekur Stormur sér 2-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Gjald fyrir heimsendingu er 1.290 kr. m/vsk en fellur niður ef verslað er fyrir kr. 15.000,- eða meira.
Pósturinn er dreifingaraðili Storms og sér um sendingu á keyptum vörum til viðskiptavina. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins. Eingöngu er hægt að fá vörur Storms sendar innan Íslands. Stormur áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.
Skilaréttur á vörum sem eru keyptar eru í vefverslun:
Framvísun reiknings er skilyrði fyrir vöruskilum.
Eftir að kaupandi hefur móttekið vöru er hann hvattur til að yfirfara vöruna og ganga úr skugga um að reikningur sé í samræmi við pöntun. Viðskiptavinur hefur rétt á að skila ógallaðri vöru í allt að 14 daga frá því að viðskiptavinur veitti vörunni viðtöku og fá hana að fullu endurgreidda. Endurgreiðsla vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins en annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda, er á ábyrgð kaupanda.
Við vöruskil gilda eftirfarandi skilyrði:
• Að varan sé í fullkomnu lagi
• Að varan sé ónotuð
• Að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum
Stormur metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef skilyrðum er áfátt.
Upphæð vöru er ávallt endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin.
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það um leið og galla er vart með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: [email protected] Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Framvísa þarf reikningi til staðfestingar að vara hafi verið keypt í vefverslun Storms. Gölluð vara er endurgreidd ásamt sendingarkostnaði eða annað eintak af sömu vöru er sent til kaupanda honum að kostnaðarlausu.
Vörum með skilamiða fæst skilað innan þess tíma sem tilgreindur er á skilamiðanum, aðeins er gefin út inneignarnóta sem miðast við verð vörunnar við skil nema að reikningi sé framvísað. Kaupandi sendir beiðni um skil á netfangið: [email protected]. Kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda, er á ábyrgð kaupanda.